Samskip og Sjóvá hafa gert með sér samning um að Sjóvá annist allar vátryggingar Samskipa hér á landi. Jafnframt sameina félögin krafta sína á sviði forvarna með það að markmiði að fækka enn frekar slysum á þjóðvegum landsins og auka öryggi vegfarenda.

Í tilkynningu vegna samningsins segir að þó svo að tjónum á þjóðvegum landsins hafi fækkað verulega með öflugu forvarnarstarfi á síðastliðnum tveimur árum kallar aukinn umferðarþungi á enn frekari aðgerðir í forvarnarmálum. Þar ætla Samskip að verða leiðandi afl og hefur félagið þegar sett sér ítarlega frovarnaráætlun, í samstarfi við Sjóvá-Forvarnarhúsið.