Samskip hafa fest kaup á 140 nýjum 45‘ gámum sem eru sérstaklega hannaðir fyrir hitastýrða flutninga á lengri leiðum félagsins um allan heim. Gámarnir eru léttari og sérlega umhverfisvænir. Gámarnir voru smíðaðir í Kína fyrir Samskip. Fjárfestingin nemur ríflega 3,8 milljónum dollara eða tæpum 430 milljónum íslenskra króna. Verð á hverjum gámi nemur um þremur milljónum króna.

Dótturfélag Samskipa, Samskip Coolboxx hefur þegar fengið gámana afhenta og eru þeir komnir í notkun. Með nýju gámunum eykst enn frekar þjónustuöryggi og einnig er hægt að auka til muna framboð á hitastýrðum flutningum. Samskip Coolboxx er félag sem sérhæfir sig í að leigja út gáma fyrir flutningafyrirtæki.

Nýju gámarnir eru  ríflega 200 kílógrömmum léttari en sambærilegir gámar og eykur það nýtingarhlutfall á öllum leiðum. Þeir eru hannaðir með það fyrir augum að hámarka afköst. Innra byrði þeirra er slétt og auðveldar það þrif og flýtir lestun og losun. Einangrunin, eða innra byrði gámanna er úr umhverfisvænu efni og samrýmist það umhverfisstefnu Samskipa.

Hver gámur hefur að geyma Thermo King Plus rafal sem sérstaklega er hannaður fyrir lengri flutninga á djúpfrystri, frosinni, kældri eða hitaðri vöru. Hitastig gámanna hleypur á – 30 gráðum upp í + 30 gráður.