Samson Global Holdings, sem er í eigu Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur aukið hlut sinn í Straumi-Burðarási í 30,2% úr 13,5%, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Björgólfur Thor Björgólfsson er stjórnarformaður Straums-Burðaráss.

Fyrr í dag tilkynnti Landsbankinn um sölu á hlutum sínum í Straumi-Burðarási og Gretti, sem era að hlutatil í eigu Björgólfsfeðga.

Búist er við því að Grettir muni selja hlut sinn í Straumi ef Björgólfsfeðgar vilja forðast yfirtökuskyldu í bankanum.