Háskólinn í Reykjavík, Samtök iðnaðarins, Tækniskólinn, Iðan fræðslusetur og Rafmennt hefja samstarf um að efla og kynna háskólanám með atvinnutengdu lokamarkmiði, eftir iðnnám og aðra starfsmenntun.

Skrifað var undir viljayfirlýsingu þess efnis í dag, en meðal markmiða samstarfsins er að fjölga nemendum í iðnnámi, sem og þeim sem byggja háskólanám ofan á iðnnám. Einnig á að koma kröftuglega á framfæri að iðnnám sé góður undirbúningur fyrir margvíslegt tækninám á háskólastigi, og hversu eftirsóttir starfskraftar með slíka menntun séu í atvinnulífinu.

Loks snýst samstarfið um að kortleggja þær leiðir sem eru á milli skólastiganna í dag og auðvelda og skilgreina leiðir þar á milli. Um þróunarverkefni er að ræða sem á við iðnmenntun í byggingar-, málm-, vél-, bíl- og rafiðngreinum og háskólanám í Háskólanum í Reykjavík sem hentar í framhaldi af iðnnámi í þeim greinum. Um leið er stefnt að því að verkefnið geti orðið fyrirmynd sem hægt verði að yfirfæra á aðrar iðngreinar og starfsmenntun. Háskólinn í Reykjavík mun leiða verkefnið.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir , mennta- og menningarmálaráðherra sagði við undirritunina að „Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um mikilvægi þess að efla iðn-,verk- og starfsnám í þágu fjölbreytni og öflugra samfélags og að því vinnum við með ötlum hætti í góðri samvinnu,“ sagði Lilja m.a.

Ari Kristinn Jónsson rektor HR segir skólann vinna að því að efla íslenskt atvinnulíf og samfélag með því að undirbúa nemendur sem best fyrir framtíðina. „Það hefur alltaf verið mikil þörf fyrir sérfræðinga með tæknimenntun og iðnmenntun, en þær breytingar sem fylgja yfirstandandi tæknibyltingu auka þessa þörf enn frekar,“ segir Ari Kristinn.

„Íslenskt samfélag þarf öflugt fólk með fjölbreytta menntun sem getur nýtt þekkingu sína til að skapa ný verðmæti og þetta samstarf er mikilvægt skref í þeirri vegferð.“

Sigurður Hannesson , framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir mikil tækifæri bíða þeirra sem ljúka iðn- og tækninámi enda opni slíkt nám fjölmargar dyr. „Atvinnulífið bíður starfskrafta þeirra en þorri þeirra félagsmanna Samtaka iðnaðarins sem vilja bæta við sig starfsfólki leitar að starfsmenntuðu fólki,“ segir Sigurður.

„Það er einfalt að fara í frekara nám fyrir þau sem það kjósa og er háskólamenntað fólk með starfsnám að baki mjög eftirsótt á vinnumarkaði. Með þessu samstarfi er markmiðið að fjölga enn frekar þeim tækifærum sem felast í iðnnámi með því að kynna námsmöguleika og þróa námsleiðir í takt við breytilegar þarfir atvinnulífs.“

Undirskrift í HR
Undirskrift í HR
© Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk )

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Boðið var upp á veglega köku í tilefni undirskriftarinnar.

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)