Fulltrúar sænsku lyfjagreiðslunefndarinnar eru staddir hér á landi og kynna heilbrigðisyfirvöldum breytingar sem orðið hafa á sænska lyfjamarkaðnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Þar segir að Svíar státi af hvað lægsta lyfjaverði í löndunum sem Íslendingar bera sig oftast saman við. Af því tilefni og til að kynna sér breytingar sem orðnar eru á sænska lyfjamarkaðnum undanfarin ár fengu heilbrigðisráðuneytið og lyfjagreiðslunefnd fulltrúa frá sænsku lyfjagreiðslunefndina til fundar við sig af því tilefni.

Þá hafa verið ræddir möguleikarnir á nánara samstarfi Svía og Íslendinga á sviði lyfjamála og eru þær viðræður liður í stefnu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra að opna íslenska lyfjamarkaðinn og stuðla að samnorrænum lyfjamarkaði. Má nefna í þessu sambandi að nú þegar hafa Íslendingar og Svíar tekið upp samstarf sem gengur út á að kanna möguleikana á að gefa út sameiginleg markaðsleyfi fyrir lyf, sem gæti orðið fyrsta skrefið í að opna norrænan lyfjamarkað. Í þessu sambandi má nefna að nú þegar eru Íslendingar og Svíar að kanna möguleika á samstarfi um útgáfu markaðsleyfa lyfja sem yrði fyrsta skrefið í að opna norrænan lyfjamarkað.

„Í Svíþjóð leggja heilbrigðisyfirvöld áherslu á að þegar endurgreiðslur hins opinbera vegna lyfja eru ákvarðaðar, að hver króna í endurgreiðslu skili sem mestu fyrir sjúklinga og skattgreiðendur. Hugmyndanafræðin sem hér liggur að baki er oftast kölluð „verðlagt eftir virði“. Kerfið í Svíþjóð var tekið upp með lagabreytingu árið 2002 og var þá sett á laggirnar lyfjagreiðslunefnd (LFN) til að meta kostnaðarhagkvæmni mismunandi lyfjavalkosta. Samhliða þessu kerfi er síðan virk samkeppni á sænska lyfjamarkaðnum á sviði samheitalyfja," segri í tilkynningunni.