Lára Valgerður Júlíusdóttir er formaður bankaráðs Seðlabankans og er hún fulltrúi Samfylkingarinnar í bankaráðinu. Lára hefur ávallt verið ötull baráttumaður fyrir jafnrétti og var meðal annars formaður Kvenréttindafélags Íslands.

Lára er nú meðeigandi að Lögmönnum Laugavegi 3 og hefur verið frá október 2010. Áður var hún meðeigandi að Borgarlögmönnum frá 2006 til 2010.

Nánar er fjallað um Láru í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast nýjasta blaðið undir liðnum tölublöð hér að ofan.