Suður-kóreska tæknifyrirtækið Samsung hagnaðist um 7,3 milljarða wona, jafnvirði tæpra 800 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi í fyrra. Þetta er 11% samdráttur á milli ársfjórðunga. Fyrirtækið hefur ekki skilað tap á neinum ársfjórðungi í tvö ár eða síðan á þriðja ársfjórðungi árið 2011. Árið var engu að síður gott hjá Samsung en hagnaður fyrirtækisins, sem nam um 30 þúsund milljörðum wona, jókst um 28% á milli ára.
Tekjur fyrirtækisins námu um 7.200 milljörðum wona á fjórðungnum sem er 18% samdráttur á milli fjórðunga. Samdrátturinn skýrist af harðari samkeppni á markað með snjallsíma og fleiri tól og tæki sem Samsung keppir á. Þá settu gengissveiflur og sérstakar bónusgreiðslur til stjórnenda strik í reikninginn hjá Samsung. Breska útvarpið ( BBC ) segir Apple eiga hlut að máli en síðasti sími fyrirtækisins, sem í raun voru tveir, þ.e. iPhone 5s og iPhone 5c sem komu á markað í fyrrahaust, hafi komið niður á snjallsímasölu Samsung. Þá kom um svipað leyti nýr sími á markað frá HTC í Taívan.