Brýnt er að stjórnvöld og fjármálafyrirtæki hugi nú þegar að samkeppnismálum við framtíðarstefnumótun á fjármálamarkaði segir í fréttatilkynningu Samkeppniseftirlitsins. Í apríl sl. gaf Samkeppniseftirlitið út umræðuskjal um samkeppni á bankamarkaði. Markmiði með því var að hvetja fjármálafyrirtæki og stjórnvöld til að gefa samkeppnismálum gaum við stefnumótun um fjármálamarkaðinn og kynna sjónarmið sín um samruna banka.

Helstu niðurstöður

Meðal helstu niðurstaðna umræðuskjalsins var að samþjöppun á bankamarkaði hefði aukist verulega frá hruni, aðgangshindranir væru miklar og erfitt væri fyrir neytendur að skipta um banka. Að mati Samkeppniseftirlitsins eru bankakerfið of dýrt miðað við núverandi umfang og hagræðing því nauðsynleg. Þá taldi Samkeppniseftirlitið að mjög alvarleg samkeppnisvandamál gætu fylgt samrunum viðskiptabanka, a.m.k. í þeim tilvikum þar sem einn eða fleiri stóru bankanna væri aðili að slíkum samruna. Í því efni benti Samkeppniseftirlitið á að stærðarhagkvæmni væri sýnd veiði en ekki gefin.

Sjónarmið fjármálafyrirækja og hagsmunaaðila

Óskaði eftirlitið eftir sjónarmiðum fjármálafyrirtækja og hagsmunaaðila. Stofnunni bárust sjónarmið frá átta aðilum. Ítarlegustu athugasemdirnar bárust frá Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankanum og eru bankarnir í meginatriðum ósammála greiningu Samkeppniseftirlitsins. Áherslur bankanna voru þó mismunandi í svörum sínum. Í svörunum var bent á að umræðuskjalið einblíni um of á hugsanleg neikvæð áhrif samruna og breytingar á markaðnum.

Þá var sagt að ekki væri rétt ályktað hjá Samkeppniseftirlitinu að rannsóknir bendi til neikvæðra áhrifa samrruna á hagræðingu. Einnig var bent á að samruni fjármálafyrirtækja væri besta leiðin til að ná fram nauðsynlegri hagræðingu í rekstri en ljóst væri að núverandi kerfi beri ekki marga banka. Þá var bent á að áherslan ætti að vera að styrkja ferli virkrar samkeppni í þágu neytenda í stað þess að horfa eingöngu til þess að vernda tilvist keppinauta sem eru til staðar á markaðnum.