Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Sóma á öllu hlutafé Kartöfluverksmiðju Þykkvabæjar. Þetta kemur fram í ákvörðun sem stofnunin birti fyrr í dag.

Fram kemur í ákvörðuninni að fyrirtækin starfi á tengdum mörkuðum. Bæði séu þau á mörkuðum tengdum framleiðslu og heildsölu á matvöru af ýmsum toga, en þó ekki þeim sömu.

Engar vísbendingar séu um að samruni félaganna sé til þess fallinn að hindra virka samkeppni og taldi stofnunin því ekki ástæðu til íhlutunar vegna samrunans.