Samkeppniseftirlitið (SKE) gerir ekki athugasemdir við kaup Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) á Lykli fjármögnun, að því er fram kemur í tilkynningu frá eftirlitinu til Kauphallar. Ákvörðunarorð SKE eru svo hljóðandi:
„Kaup Tryggingamiðstöðvarinnar hf. á Lykli fjármögnun hf. fela í sér samruna í skilningi samkeppnislaga. Samkeppniseftirlitið telur ekki forsendur til þess að hafast frekar að í máli þessu.“
Þá er í tilkynningunni greint frá þvi að kaupin hafi verið samþykkt á hluthafafundi TM þann 13. nóvember sl.. Með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins hefur tveimur af þremur fyrirvörum, sem kaupin á Lykli eru háð, verið aflétt.
TM festi kaup á Lykli fjármögnun þann 10. október síðastliðinn. Seljandi var fjárfestingarfélagið Klakkur ehf. og kaupverðið var 9,25 milljarðar króna.
Í tilkynningu TM m kaupin segir m.a. að með þeim sé verið að byggja undir nýja stoð í rekstri TM. „Kaupin á Lykli eru í samræmi við stefnu TM og eftirleiðis mun starfsemi félagsins skiptast í þrjár jafn mikilvægar stoðir, vátryggingar, fjármögnun og fjárfestingar. Tækifæri eru til að bæta arðsemi af grunnrekstri Lykils. TM áætlar að hægt verði að ná fram töluverðum samlegðaráhrifum, bæði í tekjum og kostnaði, fjölga fjármögnunarkostum og ná niður fjármagnskostnaði. Þá er stefnt að því að gera fjármagnsskipan hagkvæmari.“