Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti í dag nauðasamning gamla Landsbankans og hefur því samþykkt nauðasamninga slitabúa allra föllnu bankanna.

Glitnir reið á vaðið og fékk sinn nauðasamning samþykktan í byrjun þessa mánaðar. Kaupþing fékk sinn nauðasamning samþykktan þriðjudaginn síðastliðinn en á eftir að fá samþykki í Bandaríkjunum og undanþágu frá Seðlabankanum en það sama gildir um Landsbankann.

Glitnir mun ljúka í dag fyrstu greiðslu til kröfuhafa.