Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Haga á Olís og fasteignafélaginu DGV og þar með hefur öllum fyrirvörum kaupanna verið aflétt.

11. september 2018 var undirrituð sátt milli Haga hf. og Samkeppniseftirlitsins vegna kaupanna. „Eftir undirritun sáttarinnar fór fram mat á kaupendum þeirra eigna, sem Högum var gert að selja samkvæmt sáttinni, en þá þegar lágu allir kaupsamningar fyrir.  Þann 26. október 2018 var tilkynnt að óháður kunnáttumaður, sem Samkeppniseftirlitið skipaði, hefði metið kaupendur eignanna hæfa og að þeir uppfylltu öll skilyrði sáttarinnar.  Nú hefur Samkeppniseftirlitið metið kaupendur og farið yfir vinnu óháðs kunnáttumanns og einnig komist að þeirri niðurstöðu að kaupendur uppfylli öll skilyrði sáttarinnar og að þeir séu hæfir.  Þar með hefur öllum fyrirvörum verið aflétt og samruninn kemur því til framkvæmda," segir í tilkynningu frá Högum .

Niðurstaðan er sögð ánægjuleg þar sem samruninn skapi fjölmörg tækifæri til að bæta þjónustu við viðskiptavini sameinaðs félags. „Rekstur Olís fellur mjög vel að rekstri Haga og skapar einstakan grundvöll til sóknar og ekki síður til aukinnar hagkvæmni í breyttu samkeppnisumhverfi," segir í tilkynningunni.

Ráðgjafar Haga hafa metið samlegðaráhrif samrunans um 600 milljónir króna á ársgrundvelli. Kaupverðið nemur 10,7 milljörðum króna 5,4 milljarðar verða greiddir með reiðufé og auk þess afhentir 111 milljónir hluta í Högum að andvirði 5,3 milljarða króna. EBITDA Olís árið 2017 var um 2,3 milljarðar króna og nettó vaxtaberandi skuldir rúmir 5 milljarðar króna. Reiknað er með að vaxtaberandi skuldir samstæðunnar verði um 12 milljarðar króna eftir samrunann.