Borgarráð samþykkti á fundi sínum 28. júní tillögu að rammaskipulagi fyrir byggð í Nýja Skerjafirði. Í tillögunni er gert ráð fyrir byggð fyrir um 1.200 íbúðir, nýjum skóla, verslun og þjónustu.

Hugsað er fyrir tengingu hverfisins við áframhaldandi uppbyggingu í Vatnsmýri þegar flugvöllurinn víkur þaðan segir m.a. annars í fréttatilkynningu frá borginni. Þá er gert ráð fyrir tengingu almenningssamgangna við Kársnes í Kópavogi með byggingu brúar yfir Fossvog fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur.

Rammaskipulagið tekur til landsvæðis sem er við enda neyðarbrautarinnar sem hefur verið lokað. Svæðið liggur að núverandi byggð í Skerjafirði og afmarkast af götunni Skeljanesi til vesturs en af öryggissvæði Reykjavíkurflugvallar til norðurs og austurs. Við suðurenda byggðarinnar er síðan strandlengja Skerjafjarðar.

Rammaskipulaginu er ætlað að vera leiðarljós varðandi uppbyggingu þessa nýja hverfis á þróunarreit (Þ5) sem er skilgreindur í Aðalaskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Í framhaldi af samþykkt skipulagsins verður hafist handa við deiliskipulag á einstökum reitum svæðisins en í kjölfar þess hefst uppbygging.

Hugað verður að félagslegri blöndun á svæðinu og hafa stúdentar og Bjarg, byggingarfélag verkalýðshreyfingarinnar þegar fengið vilyrði fyrir lóðum í hinni nýju byggð. Þéttleiki byggðar verður nokkuð mikill á svæðinu en á móti verða fjölmörg torg og áningarsvæði á svæðinu. Gert er ráð fyrir að flugsögunnar verði minnst á svæðinu m.a. með svokölluðu „flugtorgi“.

Góð aðstaða verður fyrir ýmis konar sportbáta og seglskútur á svæðinu og er tiltekið að byggja eigi upp góða aðstöðu fyrir siglingaíþróttina á austurhluta strandarinnar.

Notast verður við blágrænar ofanvatnslausnir í byggingum á svæðinu og skulu 60% allra þaka verða græn en það hægir á rennsli ofanvatns. Skipulagður er grænn miðás sem liggur í átt að miðlægu torgi þar sem gert er ráð fyrir biðstöð almenningssamgangna. Í þessu græna belti verður net leikvalla og áfangastaða.