Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 2. desember síðastliðnum um áætlaða úthlutun almennra framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2017. Þetta kemur fram á vef innanríkisráðuneytisins.

Við útreikning framlaganna skiptast 87% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni stuðningsþarfar, 12% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni eigin útsvars og 1% hlutfallslega miðað við fjarlægð innan þjónustusvæða og fjölda sveitarfélaga á þjónustusvæðum.

Áætluð útgjaldaþörf þjónustusvæða nemur samtals 16.840 milljónum króna á árinu 2017. Þar af nemur áætlun útsvarstekna vegna 0,25% hlutdeildar þjónustusvæða í útsvarsstofni vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2017 alls 3.290 milljónum króna. Mismunur áætlaðrar útgjaldaþarfar og áætlaðra útsvarstekna þjónustusvæða eru áætluð almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2017.

Jafnframt fer fram leiðrétting á framlögum ársins 2015 á grundvelli endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2015 og kemur leiðréttingin til viðbótar eða frádráttar áætluðum almennum framlögum ársins 2017. Leiðréttingin nemur 70 milljónum króna og nema áætluð framlög næsta árs því 13.620 milljónum króna.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,99% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar og tekna sjóðsins af 0,235% af innheimtum skatttekjum ríkisins.