Hluthafafundur HB Granda samþykkti í gær, með miklum meirihluta atkvæða, að kaupa þrjú sölufélög Útgerðarfélags Reykjavíkur í Asíu sem og þjónustufélag hér á landi. Greitt var fyrir kaupin með nýjum hlutum í HB Granda. Verðmæti viðskiptanna er um 4,4 milljarðar.

Verði rekstrarárangur félaganna árin 2019 og 2020 undir áætlunum, mælt í EBITDA, ber seljanda að endurgreiða hluta kaupverðsins. Lækkun kaupverðs er þó að hámarki 35%. Tillagan um kaupin á félögunum var samþykkt með 88,85% afkvæða en 11,15% greiddu atkvæði gegn henni. Fyrir fundinn hafði Gildi lífeyrissjóður tilkynnt að sjóðurinn myndi greiða atkvæði gegn henni.

Tillaga um að breyta nafni HB Granda í Brim var einnig samþykkt með rúmlega 90% atkvæða hluthafa. Handhafar 9% hluts skiluðu auðu og 0,05% voru á móti nafnabreytingunni.