Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í dag einróma breytingu á launakjörum bæjarfulltrúa. Laun bæjarfulltrúa munu eftirleiðis taka mið af launavísitölu í stað þingfararkaups eins og verið hefur.

Með þessu munu laun bæjarfulltrúa hækka sem nemur 26% en hefðu hækkað um 44,3% hefðu laun bæjarfulltrúa áfram verið tengd við þingfararkaup. Hækkunin samkvæmt launavísitölu tekur gildi um næstu mánaðamót.

Mánaðarlaun bæjarfulltrúa fyrir ákvörðun kjararáðs um hækkun þingfararkaup í nóvember voru 251.770 krónur eða 33% af þingfararkaupi. Eftir breytingu verða launin kr. 317.000. Ef áfram hefði verið miðað við þingfararkaup hefðu laun bæjarfulltrúa hækkað í 363.394 krónur.

Í fréttatilkynningu frá bænum segir að með þessu hafi bæjarstjórn því tekið afstöðu til ákvörðunar kjararáðs um hækkun þingfararkaups sem gekk í gildi 1. nóvember síðastliðinn.

Bæjarráð Kópavogs frestaði gildistöku hækkunarinnar og vísaði til forsætisnefndar til nánari útfærslu um framtíðarfyrirkomulag starfskjara bæjarfulltrúa. Forsætisnefnd lagði ofangreindar breytingar á launum bæjarfulltrúa til við bæjarstjórn Kópavogs.