Samtök iðnaðarins (SI) áttu rúmlega klukkutíma langan fund með fjármálaráðherra í gær þar sem þau hvöttu hann meðal annars til að beita sér fyrir skilvirkari afgreiðslu undanþágubeiðna hjá Seðlabanka Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.

Þar kemur fram að langur afgreiðslutími hjá gjaldeyriseftirliti bankans og óljós mörk séu á meðal þess sem valdi fjárfestum og fyrirtækjum vandræðum.

„Samtökin óskuðu í byrjun vikunnar eftir fundi með Bjarna Benediktssyni í kjölfar fregna af brotthvarfi höfuðstöðva hins rótgróna iðnfyrirtækis Promens. Fjármálaráðherra brást vel við beiðninni og átti langan fund með stjórn og framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins síðdegis í gær um stöðu alþjóðlegra fyrirtækja á Íslandi og mikilvægi afnáms hafta hið fyrsta,“ segir í tilkynningunni.

Ráðherra skýrði á fundinum þá vinnu sem er í gangi í tengslum við afnám hafta og ítrekaði vilja sinn til góðs samstarfs við atvinnulífið. Forsvarsmenn SI röktu fyrir ráðherra ýmis dæmi um afleiðingar haftanna á aðildarfyrirtæki samtakanna og starfsfólk þessara fyrirtækja. Einnig bentu þeir á dæmi um hluti sem laga þurfi í framkvæmd gjaldeyrishaftanna. Svo sem hvað varðar afgreiðslu á undanþágum frá höftunum sem Seðlabankinn annast og þyrfti að vera skilvirkara að mati Samtaka iðnaðarins.

„Fundurinn var afar gagnlegur og báðir aðilar fóru yfir sjónarmið sín. Við ræddum hversu mikilvægt það sé að fyrirtæki í alþjóðlegri starfsemi séu í samkeppnishæfu umhverfi. Aðeins þannig verður hér til samfélag vel menntaðs fólks sem sér tækifæri í því að taka þátt í uppbyggingu alþjóðlegra fyrirtækja á Íslandi. Þeim tækifærum mun áfram fækka ef höftin verða hér viðvarandi ástand,“ segir Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SI.

„Það er mjög flókið og erfitt er að útskýra fyrir erlendum fagfjárfestum allar þær sértæku lausnir sem Ísland hefur gripið til. Þessi lausn getur aldrei verið til langframa og hún er þegar farin að valda okkur miklum skaða. Ekki síst í formi tapaðra tækifæra til uppbyggingar verðmætra starfa og hagvaxtar í landinu.“