Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. júlí 2010. Helgi Magnússon, formaður SI, segir að um skeið hafi verið unnið að því að finna SI nýjan framkvæmdastjóra og sé hann fundinn. Tilkynnt verði um ráðningu hans innan skamms.

Jón Steindór hefur starfað fyrir Samtök iðnaðarins, og áður Félag íslenskra iðnrekenda, í samtals 22 ár, lengst af sem aðstoðarframkvæmdastjóri en síðustu árin sem framkvæmdastjóri.

„Eftir svona langan tíma á sama vettvangi fer ekki hjá því að maður leiði hugann að því að breyta til og hasla sér nýjan völl. Nú er sá tími kominn. Það er skynsamlegt að rétta öðrum keflið þegar maður telur sig hafa lokið góðum spretti og er sáttur við árangurinn,“ segir Jón Steindór í tilkynningu vegna brotthvarfs síns.