Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sendi í gærkvöldi Tarja Halonen forseta Finnlands eftirfarandi samúðarkveðju:

Ég votta þér og finnsku þjóðinni innilega samúð Íslendinga vegna hinna hörmulegu atburða í Tuusula fyrr í dag. Hugur okkar er með fjölskyldum hinna látnu, vinum þeirra og félögum. Við vonum að samúð og stuðningur fólks um veröld víða muni milda mikla sorg á erfiðum tímum.