© Aðsend mynd (AÐSEND)

Samúel Jón Gunnarsson, fyrrverandi deildarstjóri Hýsingar og Reksturs hjá Advania, hefur verið ráðinn til vefstofunnar Kosmos & Kaos. Þar verður hann þróunar- og rekstrarstjóri hjá vefstofunni Kosmos & Kaos. Ráðning er sögð liður í því að auka þjónustu og vöruframboð Kosmos & Kaos í tengslum við hýsingu og rekstraþjónustu á vefsíðum og vefkerfum sem notast við opinn hugbúnað.

Í tilkynningu frá Kosmos & Kaos segir að fyrirtækið er virkur þátttakandi í samfélagi opins hugbúnaðar (e. open source) og stoltur meðlimur í Drupal Association. Samúel er einmitt sérfræðingur á sviði opins hugbúnaðar og hefur hann sankað að sér mikilli reynslu því tengdu.

Samúel Jón mun stýra áframhaldandi þróun á rekstrarumhverfi auk þess að sinna forritunarvinnu. Samúel Jón er menntaður í rafmagnstæknifræði með áherslu á tölvunarfræði og hefur áralanga reynslu af rekstri og þróun margra af flóknustu tölvukerfum landsins. Samúel sagði á dögunum skilið við starf sitt sem deildarstjóri Hýsingar og Reksturs hjá Advania en hefur í gegnum árin starfað sem verkefna-, kerfisstjóri og í hugbúnaðarþróun um margra ára skeið hjá Advana, Landmælingum Íslands og Skýrr.

Kosmos & Kaos er vefstofa sem leggur áherslu á nýstefnulega vefhönnun, vefþróun og stafrænna markaðsetningu. Síðastliðin ár hefur Kosmos & Kaos hlotið verðlaun og fjölda tilnefninga á íslensku vefverðlaunum. Sem dæmi má nefna vefsíðurnar wow.is , bluelagoon.is , arktiekt.is , postur.is , vodafone.is og visindavefur.is . Nýjustu vefir úr smiðju Kosmos & Kaos eru vefsíða fyrir IcelandMag.is, on.is , sudurland.is og Sjova.is. Frá upphafi hefur Kosmos & Kaos lagt áherslu á að geta boðið starfsfólki sínu upp á gott starfsumhverfi og krefjandi verkefni, sem er í samræmi við gildandi Hamingjustefnu fyrirtækisins.