Þýska tölvufyrirtækið SAP hefur samþykkt að kaupa franskan keppinaut sinn sem heitir Business Objects fyrir rúmar 4,8 milljarða evra.

Verðið sem SAP greiðir fyrir Business Objects er 20% yfir því gengi sem fyrirtækið var metið á við lokun markaða fyrir helgi og féll gengi SAP um 5% í kjölfar kaupanna.