Einungis 34 viðskipti voru með hlutabréf á aðalmarkaði Nasdaq Iceland í dag, og var heildarveltan með hlutabréf 189.107.835 kr. Velta með skuldabréf nam aftur á móti 3.697.892.183 kr., í 24 viðskiptum.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,1%, en lækkun varð á bréfum Marel hf. um 0,66%. Einungis var 212.000 króna velta í sex viðskiptum með bréfin. Þá lækkuðu bréf Regins um 0,95% í einum viðskiptum sem námu 939.999 krónum. Að sama skapi lækkuðu bréf Icelandair Group um 0,20%, í 11 viðskiptum sem námu 57.436.444 krónum. Mest velta var með bréf Icelandair Group.

Mest hækkun var á bréfum N1, en þau hækkuðu um 0,77%, í tveimur viðskiptum þar sem velta nam 157.200 kr.