Nicholas Sarkozy, forseti Frakklands, hefur boðað leiðtoga þeirra Evrópuríkja sem tilheyra átta helstu iðnríkjum heims á fund um þá kreppu sem skekur fjármálamarkaði.

Fundurinn verður haldinn á næstu dögum en auk ofangreindra munu helstu embættismenn í fjármála- og efnahagsráðuneytum landanna verða boðaðir á fundinn, auk seðlabankastjóra Evrópu og fulltrúa þeirra ríkja sem tilheyra evrusvæðinu