SAS Cargo Group A/S, sem er hluti af norræna flugfélaginu Scandinavian Airlines (SAS), hefur samþykkt að taka yfir fraktflutninga lággjaldaflugfélagsins Sterling Airlines.

FL Group samþykkti nýlega að kaupa Sterling af eignarhaldsfélaginu Fons, sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, fyrir 15 milljarða króna.

Í tilkynningu frá SAS Cargo segir að með samningnum aukist fraktflutningageta félagsins um 30 þúsund tonn árlega. Kaupverð samningsins hefur ekki verið gefið upp.