Tekjur SAS af sölunni nema um hálfum milljarði sænskra króna. Það jafngildir níu milljörðum íslenskra króna. Salan er hluti af nýlegri fjárhagsáætlun sem gerð var fyrir örfáum mánuðum til þess að forða flugfélaginu frá gjaldþroti. SAS greinir frá sölunni í tilkynningu sem birt er á danska vefnum Börsen.