Stjórn Samtaka auglýsenda hvetur alla auglýsendur til að sniðganga DV þar til stjórnendur þess hafa fært siðareglur blaðsins til samræmis við siðreglur Blaðamannafélags Íslands, segir í tilkynningu félagsins.

Samtökin telja ?beinlínis skaðlegt fyrir ímynd auglýsenda að auglýsa í DV".

Ekki náðist í Jónas Kristjánsson né Mikael Torfason ritstjóra DV vegna málsins. Talsmaður ritstjórnar blaðsins, sem Viðskiptablaði náði tali af, neitaði að tjá sig um málið.