Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI breyttist lítið í dag í 17,5 milljarða króna viðskiptum. Lækkaði hún um 0,04%.  GAMMAi: Verðtryggt hækkaði lítillega, 0,03%, í 6 milljarða króna viðskiptum. GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,2% í 11,4 milljarða viðskiptum.

Eins og áður segir voru minni viðskipti með verðtryggð skuldabréf. Mest voru viðskipti með lengsta flokkinn, HFF 44, fyrir 2,6 milljarða króna. Hækkaði krafan um einn punkt. Krafan á HFF 24 lækkaði um þrjá punkta.

Mest viðskipti voru með RB 19 í óverðtryggðu bréfunum fyrir rúma 3 milljarða króna. Mest hækkaði krafan á RB 13 um tíu punkta. Krafan á RB 22 lækkaði um fjóra punkta.