Rúmlega 90% áætlunarferða frá Keflavíkurflugvelli á veturna eru á vegum WOW air, easyJet, en þó að mestu hjá Icelandair. Greint er frá þessu í frétt Túrista .

Á síðustu þremur árum hefur markaðshlutdeild Icelandair þó dregist verulega saman. Í nóvember 2012 hafði flugfélagið 82% hlutdeild en á sama tíma í ár er hlutdeild þess 64,5%.

Þá hefur WOW aukið sína eigin hlutdeild úr 9,4% í 16,7%, og easyJet frá 2,2% allt upp í 10,6% á þessu sama þriggja ára tímabili.