Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hefur undirritað sambankalán að fjárhæð 200 milljónir evra og er lánið til þriggja ára, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Þar segir að verulegur áhugi hafi verið fyrir þátttöku í láninu og var lánið í kjölfarið hækkað úr 100 milljónum evra í 200 milljónir evra vegna umframeftirspurnar.

BayernLB, Commerzbank og Lloyds TSB leiddu lánið en alls voru 15 aðrir evrópskir bankar þátttakendur.