Veitingastaðurinn Sbarro, sem meðal annars hefur útibú í Kringlunni og Smáralind, hefur verið valinn í tímabundið veitingarými sem sett verður upp í suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar í sumar.

Áður auglýsti Isavia eftir aðilum í tímabundið rými en fyrirkomulagið er þekkt á flugvöllum erlendis. „Fjórtán aðilar sendu inn umsókn á fyrra stigi og fengu fimm þeirra tækifæri til að skila inn frekari gögnum fyrir valnefnd sem í sátu einn fulltrúi frá Isavia og tveir utanaðkomandi aðilar. Eftir nánari kynningu á fyrirkomulagi bárust upplýsingar frá tveimur áhugasömum aðilum,“ að því er kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

Var til að mynda horft til þess að mikilvægt væri að veitingasöluaðilinn bæri fram veitingar sem neytendur þekkja og að afgreiðsla vörunnar væri bæði hröð og einföld. Valnefnd þótti Sbarro líklegasti aðilinn til að skila sem bestum árangri að teknu tilliti til fyrrgreindra viðmiða. Útleigutímabil er frá 1. júní 2017 til 20. nóvember 2017 og er stefnt að opnun veitingasölunnar um miðjan júní. Isavia stefnir að því að leigja tímabundin rými út yfir vetrar- og sumartímabil og er stefnt að því að bjóða einnig út verslunarrými yfir vetrartímann.