Sænski vörubifreiðaframleiðandinn Scania hefur, ásamt næst stærsta hluthafa sínum Investor AB, hafnað 856 milljarða krónu yfirtökuboði í fyrirtækið, segir í fréttinni.

Með yfirtökunni hefði orðið til stærsti vörubifreiðaframleiðandi í Evrópu, en talsmenn Investor segja að tilboðið sé of lágt.

Stjórn Scania samþykkti einróma að hafna tilboðinu.