Michael Schumacker, Mika Hakkinen og Franz Beckenbauer léku fyrir áramótin saman í auglýsingu fyrir þýska bílaframleiðandann Mercedes Benz.

Schumacker, sem hefur sjö sinnum orðið heimsmeistari í formúlu 1 og keppir nú fyrir Mercedes GP, og Mika Hakkinen, sem varð tvisvar heimsmeistari og keppti lengst af fyrir McLaren Mercedes, starfa nú báðir fyrir Mercedes Benz.

Í auglýsingunni "Sunnudagsbílstjórinn" kynna þeir fjórhjóladrifna bíla, ásamt Franz Beckenbauer, keisaranum, sem var landsliðsmaður í knattspyrnu, þjálfari þýska landsliðsins, forseti Bayern München og forseti þýska knattspyrnusambandsins.

Hér má sjá þýsku útgáfuna af auglýsingunni og stutta mynd um gerð hennar á ensku.

Auglýsingunni var breytt fyrir enskumælandi lönd.  Beckenbauer var skipt út og í staðinn kom breska leikkonan Sophia Myles.