Donald Trump og Arnold Schwarzenegger standa nú í deilum á Twitter. Líkamsræktarfrömuðurinn er nýja andlit Celebrety Apprentice þáttanna, sem gerðu Trump að sjónvarpsstjörnu.

Forsetinn tjáði sig nýlegi í morgunþætti í Washington um arftaka sinn og sagði hann vera hræðilegan staðgengil. Trump benti einnig á að vinsældir þáttanna hafi hrunið eftir að Schwarzenegger tók við.

Schwarzenegger var þó ekki lengi að svara fyrir sig, því stuttu síðar birti hann myndband á Twitter, þar sem hann lagði til að skiptast á störfum.