Samkeppniseftirlitið hefur birt ákvörðun þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að Securitas hf. hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á markaði fyrir öryggisgæslu fyrir heimili og fyrirtæki. Fyrirtækið er sektað um 80 milljónir króna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Brot Securitas fólust í því að fyrirtækið gerði einkakaupasamninga við viðskiptavini sína um svokallaða Heimavörn og Firmavörn, en samningarnir fólu í sér að viðskiptavinunum var óheimilt að eiga viðskipti við aðra þjónustuaðila um nokkurra ára skeið. Einnig voru í samningunum ákvæði sem voru til þess fallin að skapa auka tryggð viðskiptavina við Securitas, að mati Samkeppniseftirlitsins.

Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Securitas hafi verið markaðsráðandi í öryggisgæslu fyrir heimili og fyrirtæki. Fyrirtækið hafi haft mikla yfirburði á því sviði og hafi verið, á árunum 2006-2011 sem til skoðunar voru, með um 65-70% hlutdeild. Einkakaupasamningar fyrirtækisins höfðu því talsverð útilokunaráhrif og takmörkuðu möguleika minni keppinauta á að ná til sín auknum viðskiptum eða nýrra að komast inn á markaðinn.

Samkvæmt samningum Securitas hafa viðskiptavinir fyrirtækisins verið bundnir í viðskipti við það í a.m.k. þrjú ár. Samkeppniseftirlitið segir Securitas hafa haldið því fram að samningarnir fælu í sér greiðsludreifingu auk þess sem áhætta fyrirtækisins væri mikil ef ekki kæmi til þessi binditími. Í ákvörðuninni er ekki fallist á þessar skýringar að öllu leyti heldur er niðurstaðan sú að út frá rekstrarlegum forsendum geti Securitas ekki réttlætt svo langan binditíma.

„Er það því niðurstaða Samkeppniseftirlitsins, að einkakaupasamningar Securitas með binditíma til þriggja ára auk ákvæða sem skapa aukna tryggð viðskiptavina við fyrirtækið, feli í sér misnotkun á markaðsráðandi stöðu og brot á 11. gr. samkeppnislaga. Vegna þessara brota er Securitas gert að greiða 80 milljón króna stjórnvaldssekt í ríkissjóð.“