ÁTVR og Securitas hafa gert með sér samning um að Securitas taki yfir öryggismál stofnunarinnar en samningurinn er til næstu fjögurra ára og nær yfir heildaröryggismál ÁTVR, það er vöktun, gæslu og öryggisráðgjöf, ásamt tæknilegri þjónustu við fyrirtækið í heild.
„Við erum mjög ánægð með að ÁTVR hafi valið okkur sem samstarfsaðila í öryggismálum fyrirtækisins. ÁTVR gerir kröfur um hámarksgæði og fagmennsku hjá sínum samstarfsaðilum sem er í takt við þá þjónustu sem við veitum okkar viðskiptavinum. Securitas veitir fjölbreytta ráðgjöf og þjónustu í öryggismálum sem var einn að lykilþáttum að ÁTVR valdi okkur sem samstarfsaðila,“ ef haft eftir Fannari Erni Þorbjörnssyni, framkvæmdastjóra Sölu- og þjónustusviðs hjá Securitas, í fréttatilkynningu.
Rúmlega 500 manns starfa hjá ÁTVR en alls eru reknar 51 verslanir undir merkjum Vínbúðarinnar um allt land.
„Við hjá ÁTVR erum ánægð með að samningurinn við Securitas er í höfn en öryggismálin eru eðlilega mikilvægur hlekkur í daglegum rekstri okkar. Það er því nauðsynlegt að allt sé eins og best verður á kosið í þeim efnum og við trúum því að með samningnum höfum við tekið farsælt skref í öryggismálunum,“ segir Sveinn Vikingur Árnason, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs ÁTVR.