Seðlabankastjóri verður skipaður í dag, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. Fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, mun tilkynna eftir hádegi í dag hver verður skipaður.

Eins og fram hefur komið taldi hæfisnefnd þrjá umsækjendur hæfasta til að gegna starfi seðlabankastjóra, þá Má Guðmundsson, Friðrik Má Baldursson og Ragnar Árnason.

Lengri tíma hefur tekið að skipa nýjan seðlabankastjóra en gert var ráð fyrir í upphafi, en skipunartími Más Guðmundssonar rennur út í næstu viku.