Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa aflandskrónueignir í skiptum fyrir reiðufé í evrum á genginu 137,5 krónur á evru, eins og áður hefur komið fram. Seðlabankinn minnir á þetta í fréttatilkynningu , þar sem kemur fram að beiðnir um viðskipti verða að hafa borist Morgan Stanley fyrir lok dags föstudaginn 28. apríl. Uppgjör mun fara fram eins fljótt og unnt er.

Tilboðið nær til innstæðna, víxla og skuldabréfa sem gefin eru út af ríkissjóði eða Íbúðalánasjóði, og innistæðubréfa Seðlabankans, að því er kemur fram í frétt Seðlabanka Íslands. Aflandskrónueignum í formi innstæðna skal skipt í innstæðubréf Seðlabankans áður en til viðskipta kemur.

„Verð miðast við hagstæðasta kauptilboð við lok viðskipta 10. mars 2017, [...], að viðbættum áföllnum vöxtum við uppgjör viðskipta. Allar greiðslur af hálfu Seðlabankans verða inntar af hendi með milligöngu Morgan Stanley í Lundúnum.

Tilboðið nær til erlendra fjármálafyrirtækja, sjóða og viðurkenndra mótaðila sem uppfylla skilyrði um varnir gegn peningaþvætti og aðrar kannanir á áreiðanleika viðskiptamanna gagnvart Morgan Stanley & Co. International plc. Slíkir aðilar geta átt viðskipti hvort sem er fyrir eigin reikning eða fyrir hönd viðskiptavina sinna. Eigendur aflandskróna skulu hafa samband við vörsluaðila viðkomandi eigna vegna viðskipta og uppgjörs en frestur til að skila tilboði og uppgjör viðskipta getur verið mismunandi eftir vörsluaðilum.,“ segir í frétt Seðlabankans.