Lára V. Júlíusdóttir, fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, staðfestir að Seðlabankinn hafi greitt kostnað af málarekstri Más Guðmundssonar seðlabankastjóra gegn íslenska ríkinu vegna kjaradeilu hans við ríkið. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Láru.

„Ég var formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands á þessum tíma. Bankaráðið hafði beðið Andra Árnason hrl. um lögfræðilega álitsgerð um réttarstöðu seðlabankastjóra þar sem hann var meðal annars spurður hvort hægt væri að lækka laun seðlabankastjóra á skipunartíma og frá hvaða tímapunkti ætti að greiða seðlabankastjóra laun samkvæmt ákvörðun kjararáðs. Niðurstaða lögfræðiálitsins var sú að ekki væri hægt að breyta launum seðlabankastjóra á skipunartíma og því kæmi úrskurður kjararáðs ekki til framkvæmda fyrr en að honum liðnum.  Tilraunir Más Guðmundssonar til að fá kjararáð til að staðfesta niðurstöðu álitsins reyndust árangurslausar. Eina leiðin til að fá úr þessu skorið var fyrir dómstólum. Það var ekki síður hagsmunamál Seðlabankans  sjálfs að fá úr þessu skorið en þess einstaklings sem á hverjum tíma gegnir embætti seðlabankastjóra. Í ljósi þessa var sú ákvörðun tekin að bankinn stæði straum af öllum kostnaði vegna málsins,“ segir Lára í yfirlýsingunni.

Lára segir að bankaráðið hafi verið upplýst á hverjum tíma um stöðu þessa dómsmáls og hafi haft öll tök á að fylgjast með málinu, en hún sem formaður ráðsins hafi haft meginumsjón með rekstri málsins fyrir hönd bankans og átt í samskiptum við þá sem önnuðust málareksturinn eftir þörfum.