Frá og með morgundeginum og til mánaðarloka mun Seðlabanki Íslands selja viðskiptavökum á gjaldeyrismarkaði 3 milljónir evra þrisvar í viku hverri, eða samtals 33 milljónir evra. Viðskiptin munu fara fram á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum og verða framkvæmd fljótlega eftir opnun markaðarins en eigi síðar en kl. 10 árdegis, að því er kemur fram í tilkynningu bankans .

Á kynningarfundi eftir síðustu vaxtaákvörðun bankans sagði Seðlabankastjórinn Ásgeir Jónsson að líkur væru á því að bankinn færi að draga úr reglulegum gjaldeyrisinngripum héldi krónan áfram að styrkjast. Líkt og að kemur fram að ofan hefur þetta nú komið til framkvæmdar.

„Með ákvörðun þessari dregur Seðlabankinn úr tíðni og umfangi reglubundinnar gjaldeyrissölu sem framkvæmd hefur verið með óbreyttu sniði síðan 14. september 2020. Með hliðsjón af gengisþróun íslensku krónunnar undanfarnar vikur og vísbendingum um betra jafnvægi á gjaldeyrismarkaði telur Seðlabankinn tímabært að draga úr umfangi viðskiptanna. Markmið gjaldeyrissölunnar er eftir sem áður að auka dýpt gjaldeyrismarkaðarins og bæta verðmyndun,“ segir í tilkynningu Seðlabankans.

Bankinn muni áfram tilkynna í lok hvers mánaðar um fjárhæð og ætlaða viðskiptadaga fyrir sölu gjaldeyris í mánuðinum sem í hönd fer og muni fjárhæðin taka mið af aðstæðum á markaði. „Miðað verður að því að umfang gjaldeyrissölunnar sé í samræmi við eðlilega virkni markaðarins. Seðlabankinn áskilur sér því fullan sveigjanleika til að aðlaga fjárhæð, tíðni og framkvæmd sölunnar til að tryggja skilvirkni aðgerðarinnar.“

Seðlabankinn seldi samtals 69 milljónir evra (10,4 milljarða króna) með reglubundnum hætti í síðasta mánuði. Frá 14. september hefur bankinn svo selt samtals 420 milljónir evra (66,2 milljarðar króna) í reglulegum viðskiptum.

Í lok tilkynningar Seðlabankans er bent á að reglubundin gjaldeyrissala hafi ekki áhrif á yfirlýsta stefnu Seðlabankans um að grípa inn í á gjaldeyrismarkaði til að draga úr sveiflum eftir því sem hann telur tilefni til.