Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að greiða fyrirfram eftirstöðvar láns frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) og nemur endurgreiðslan 42 milljörðum króna, með gjalddaga 2015 og 2016. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum.

Ástæða fyrirframgreiðslunnar er sögð vera sú að lausafjárstaða Seðlabankans er rúm um þessar mundir, m.a. vegna viðskipta á innlendum gjaldeyrismarkaði. Því sé til staðar svigrúm til að minnka skammtímaskuldir í erlendum gjaldeyri.

,,Með fyrirframgreiðslunni lækka erlendar skuldir þjóðarbúsins og Seðlabankans. Seðlabankinn var lántaki þar sem hann er fjárhagslegur aðili að AGS fyrir hönd íslenska ríkisins og er því ekki um að ræða bein áhrif á skuldir ríkissjóðs. Gjaldeyrisforði dregst saman vegna ofangreindrar skuldastýringar," segir í tilkynningu Seðlabankans.

Umrætt lán frá AGS var tekið í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda hér á landi og AGS í kjölfar bankahrunsins í október 2008. Heildarfjárhæð lánsins, sem tekið var í áföngum, nam um 250 milljörðum króna þegar áætluninni lauk í ágúst 2011. Að auki tók Ísland lán frá Norðurlöndunum, Færeyjum og Póllandi að fjárhæð 304 milljarða króna í tengslum við efnahagsáætlunina, en þau lán voru greidd fyrirfram á árunum 2012-2015.

Með uppgreiðslu AGS-lánsins lýkur eftirfylgni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi í kjölfar loka efnahagsáætlunarinnar. Segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri að uppgreiðsla lánsins frá AGS fyrr en áætlað var sé til marks um ágætan árangur af efnahagsáætluninni og gott samstarf við starfsfólk sjóðsins.