Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í morgun að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Ákvörðunin er í samræmi við spár flestra greiningaraðila, en þetta þýðir að stýrivextir eru nú 6,0%.

Í rökstuðningi peningastefnunefndar segir að þjóðhagsspá Seðlabankans bendi til nokkru minni hagvaxtar í ár en spáð var í ágúst. Á móti kemur að hagvöxtur á næsta ári verður meiri en áður var spáð og horfurnar á spátímabilinu því svipaðar þrátt fyrir mótvind alþjóðlegrar efnahagsþróunar. Efnahagsbatinn heldur því áfram með vaxandi fjárfestingu og stöðugum vexti einkaneyslu, og slakinn í þjóðarbúskapnum hverfur á spátímabilinu.

„Verðbólga hefur verið nokkru minni en spáð var í ágúst. Horft fram á veginn vegast á meiri slaki í þjóðarbúskapnum um þessar mundir en spáð var í ágúst og töluvert lægra gengi krónunnar en þá var reiknað með. Á heildina litið eru verðbólguhorfurnar metnar svipaðar. Óvissa um gengisþróun á spátímanum leiðir til samsvarandi óvissu um þróun verðbólgu og verðbólguvæntinga. Verðbólgu­væntingar eru enn yfir markmiði bankans, þótt þær hafi lækkað nokkuð á suma mælikvarða,“ segir í tilkynningu frá bankanum.

Þar segir jafnframt að laust taumhald peningastefnunnar á undanförnum misserum hafi stutt við efnahagsbatann. „Hækkun vaxta undanfarið rúmt ár og hjöðnun verðbólgu hafa dregið umtalsvert úr slaka peningastefnunnar. Eftir því sem slakinn hverfur úr þjóðarbúskapnum er nauðsynlegt að slaki peningastefnunnar hverfi einnig. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar. Grunnspá Seðlabankans bendir til þess að núverandi nafnvextir bankans nægi til þess að verðbólgumarkmiðið náist á spátímanum. Það er þó m.a. háð því að endurskoðun kjarasamninga á nýju ári samrýmist hjöðnun verðbólgu að markmiðinu.“