Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, hækka því úr 1% í 1,25%. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Seðlabankans.

Fram kemur að efnahagshorfur hafa batnað frá fyrri spá bankans. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í ágústhefti Peningamála eru horfur á 4% hagvexti í ár sem er 0,9 prósentum meiri vöxtur en spáð var í maí.

„Vegur þar þungt örari fjölgun ferðamanna í sumar en gert var ráð fyrir. Atvinnuleysi hefur hjaðnað meira en spáð var þótt það sé enn mikið og slakinn í þjóðarbúskapnum minnkað hraðar,“ segir í tilkynningunni.

Peningastefnunefndin bendir á að þó stór hluti þjóðarinnar sé nú bólusettur fyrir Covid-19-farsóttinni, þá hefur smitum hins vegar fjölgað á ný og enn er nokkur óvissa um framvindu farsóttarinnar vegna aukinnar útbreiðslu Delta-afbrigðis veirunnar.

Þá segir að áhrif tímabundinna framboðstruflana erlendis gætu varað lengur en áður var talið en þær hafa hækkað kostnað við að framleiða og dreifa vörum um allan heim.

Verðbólgan yfir markmiði út árið

Verðbólga mældist 4,4% á öðrum fjórðungi ársins en var 4,3% í júlí. „Almennur verðbólguþrýstingur virðist fara minnkandi, einkum ef litið er til undirliggjandi verðbólgu, þótt hann sé enn nokkur. Svo virðist sem hækkun verðbólguvæntinga fyrr á árinu sé að ganga til baka.“

Samkvæmt spá Seðlabankans eru þó horfur á að verðbólga hjaðni lítillega hægar en gert var ráð fyrir í maí. Talið er að hún haldist yfir 4% út árið en verði komin í markmið á seinni hluta næsta árs.

„Peningastefnunefnd mun beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verðbólga hjaðni aftur í markmið innan ásættanlegs tíma,“ segir nefndin að lokum.