Seðlabankinn keypti í dag krónur fyrir tólf milljónir evra á millibankamarkaði. Gengi krónunnar styrktist um rúmlega 1% á markaði eftir nær sleitulausa veikingu frá í nóvember í fyrra.

Í tilkynningu frá Seðlabankanum kemur fram að bankinn hafi nýlega veitt undanþágur frá gjaldeyrishöftunum og það haft í för með sér umtalsverð gjaldeyriskaup á markaði. Þá hafi verið óvenjumikið útstreymi á gjaldeyri að undanförnu og telji bankinn það tímabundið ástand.

Þá kemur fram að áhrif á gengi krónunnar hafi verið töluverð þar sem viðskiptin komi fram á sama tíma og innstreymi á gjaldeyri vegna utanríkisviðskipta hafi verið í minna lagi. Á sama tíma hafi afborganir á erlendum lánum verið miklar. Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur hjá Greiningu Íslandsbanka, benti einmitt á þetta atriði í samtali við netútgáfu Viðskiptablaðsins í dag. Seðlabankinn segir óæskilegt að slíkar tímabundnar hreyfingar hafi mikil áhrif á gengi krónunnar.

Seðlabankinn hefur áður keypt töluverðan gjaldeyri af fjármálafyrirtækjum í einstökum viðskiptum auk gjaldeyris sem bankinn kaupir í viku hverri. Aðgerðin í dag er í samræmi við þá stefnu Seðlabankans að eiga viðskipti á gjaldeyrismarkaði þegar þörf krefur í því skyni að draga úr gengissveiflum.