Seðlabankinn og stjórnvöld hafa ekki sett fram kröfur af hálfu bankans í tengslum við slit Glitnis og Kaupþings. Fram kemur í yfirlýsingu bankans í tengslum við málið að innan Seðlabankans hafi verið til skoðunar ýmsar hugmyndir um leiðir til þess að gera upp bú Glitnis og Kaupþings án þess að það leiði til óstöðugleika í gjaldeyrismálum eða tefli fjármálalegum stöðugleika í tvísýnu. Nokkrar leiðir sem fullnægja þessum skilyrðum gætu komið til greina. Engar ákvarðanir hafa verið teknar í þessu sambandi og Seðlabankinn getur því ekki tjáð sig um einstakar hugmyndir sem kunna eða kunna ekki að hafa verið viðraðar um lausn málsins.

Í Morgunblaðinu í morgun sagði frá áætlun Seðlabanka Íslands, sem gengur undir vinnuheitinu Bingó. Samkvæmt henni verða nauðasamningar Kaupþings og Glitnis ekki samþykktir nema það fáist að minnsta kosti 75% niðurskrift á 400 milljarða krónueignum kröfuhafanna. Stærstu eignirnar eru 95% hlutur í Íslandsbanka og 87% hlutur Arion banka. Vinnuáætlunin gengur undir vinnuheitinu Bingo. Hvorki slitastjórnir Kaupþings Glitnis könnuðust við þessar kröfur Seðlabankans þegar VB.is leitaði eftir viðbrögðum þeirra fyrr í dag.

Slitastjórnir eiga að koma með tillögurnar

Í yfirlýsingu Seðlabankans segir telur bankinn það vera í verkahring slitastjórna bankanna að leggja fram tillögur að leiðum sem samrýmast ofangreindum markmiðum. Seðlabankinn muni að fengnum slíkum tillögum taka afstöðu til þess hvort þær samrýmist stöðugleika svo veita megi nauðsynlegar undanþágur frá gjaldeyrislögum. Samkvæmt gjaldeyrislögum beri bankanum að hafa samráð við fjármálaráðherra áður en undanþága yrði veitt.

Þá segir Seðlabankinn að losun fjármagnshafta er verkefni sem unnið hefur verið í samvinnu ríkisstjórnar og Seðlabankans og Seðlabankinn muni engu hrinda í framkvæmd nema í samráði við fulltrúa hennar.