Björgólfur Guðmundsson, formaður stjórnar Landsbankans, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þess að DV greinir í dag frá orðrómi um að Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, hafi þrýst á Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóra, um að flýta samningum um sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy til þess að laga "... fjárhagsstöðu Hannesar gagnvart bankanum" eins og segir í blaðinu en Hannes Smárason er forstjóri FL Group sem er einn af stærstu hluthöfum í Geysir Green Energy.

"Af þessu tilefni vill Björgólfur Guðmundsson taka fram að aðdróttanir DV um afskipti hans að máli þessu eru algjörlega útí hött. Björgólfur hafði enga vitneskju um sameiningu Reykavík Energy Invest og Geysir Green Energy fyrr en tilkynnt var um hana í fjölmiðlum," segir í yfirlýsingunni.

Þar segir ennfremur: "Vinnubrögð DV í máli þessu eru vítaverð þar sem blaðið leitaði hvorki til Landsbankans né skrifstofu Björgólfs Guðmundssonar áður en blaðið birti ósannindi sem geta skaðað orðspor og hagsmuni Landsbankans og Björgólfs Guðmundssonar bæði hér heima og erlendis en bankinn er undir ströngu eftirliti fjármálayfirvalda í hverju því landi sem hann starfar auk alþjóðlegra matsfyrirtækja. "