Þvert á fullyrðingar Andrésar Magnússonar, framkvæmdastjóra SVÞ, sem Viðskiptablaðið sagði frá í gær, segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, að heill kafli í ákvörðun stofnunarinnar um sameiningu Haga og Lyfju hafi verið helgaður innkomu Costco inn á íslenska markaðinn.

Segir Páll Gunnar það ekki rétt að Samkeppniseftirlitið hafi ekki tekið tillit til áhrifa af komu bandarísku stórverslunarinnar og í því ljósi komi fullyrðingar Andrésar á óvart að því er fram kemur í Fréttablaðinu .

Andrés hafði áður bent á að ef ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í þessu máli verði upptaktur að öðrum ákvörðunum þess sé stofnunin ekki búin að taka markaðshlutdeild Costco annars vegar og tilvonandi hlutdeild H&M hins vegar.

Áhrif bæði takmörkuð, en einnig of snemmt að segja til um þau

Páll Gunnar segir hins vegar rannsókn málsins hafa leitt í ljós að Costco hafi takmörkuð áhrif á þá markaði sem bæði Hagar og Lyfja starfi á, þó þeir segi líka að of snemmt sé að segja til um það.

„Hagar og aðrir markaðsaðilar gerðu sama fyrirvara, að það væri ekki komin nógu mikil reynsla af Costco. Við munum svo án efa leggja mat á þetta aftur þegar meiri reynsla er fengin af innkomu Costco,“ segir Páll Gunnar. „Við verðum að vanda þetta mat og gæta þess að stefna ekki hagsmunum almennings í voða.“

Hlutverk stofnunar að hindra samruna

Páll Gunnar segir hlutverk stofnunarinnar að koma í veg fyrir að samrunar eigi sér stað sem skaði samkeppni og leiði þannig til hærra verðs og verri þjónustu.

„[Þ]að var í raun og veru ekki fyrr en undir lok frestsins sem við gátum aflað upplýsinga um raunverulega reynslu af fyrstu vikum starfsemi Costco. Það verður síðan að koma í ljós hver þróunin verður,“ segir Páll Gunnar.

„Það liggur í hlutarins eðli að þetta verður skoðað aftur. Það er augljóst að við rannsókn á öðrum samrunum, sem tengjast þeim mörkuðum sem Costco starfar á, munum við afla gagna að nýju og höfum þá lengri reynslu til þess að byggja mat okkar á.“

Keppinautar höfðu áhyggjur af samruna

Páll Gunnar segir að eftirlitið hafi aflað mjög víðtækra gagna frá bæði samrunaaðilum og öðrum félögum á dagvörumarkaði, í smásölu og heildsölu, sem mörg lýstu áhyggjur af samrunanum.

„Við öfluðum meðal annars áætlana frá Costco og Högum og öðrum keppinautum um innkomu Costco, upplýsinga um reynslu af opnun Costco annars staðar, tölulegra upplýsinga um rekstur Costco og veltu á fyrstu fjórum vikum starfseminnar og eins tölulegra upplýsinga frá öðrum félögum á markaðinum sem gáfu þá til kynna hver raunveruleg áhrif Costco voru á sölu í einstökum vöruflokkum,“ segir Páll Gunnar.

„Við skoðuðum auk þess upplýsingar um veltu annarra erlendra verslanakeðja sem hafa hafið starfsemi hér á liðnum árum. Á grundvelli gagnanna sem við öfluðum stilltum við upp mögulegum sviðsmyndum af áhrifum Costco og byggðum okkar ályktanir á þeim.“