Framboð á flugi til Tenerife og Kanarí hefur tvöfaldast með áætlunarflugum WOW air til áfangastaðanna. Miðillinn Túristi.is hefur gert verðkönnun á flugi til áfangastaðanna en hann komst að því að það er nærri tvöfaldur verðmunur í sömu flugferðirnar til Tenerife.

Tekið er dæmi um þrjár flugvélar sem fara þann 26. janúar n.k. Hæsta verð til Tenerife þann dag er 79.900 og lægsta verð er 35.807 krónur ( 45.805 krónur ef einnig er bókað fyrir tösku) fyrir staka flugmiða.

Tómas J. Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða, segir að það sé ljóst að þessi lægstu fargjöld, sem nú eru í boði, séu langt undir kostnaðarverði og að enginn geti selt mörg sæti svona ódýrt.