Inngrip Seðlabankans á fimmtudag kostuðu fyrirtækið Hlaðbæ-Colas hf. 4,5 milljónir króna, að sögn Sigþórs Sigurðssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Hlaðbær-Colas er malbikunarstöð og þarf að þarf að flytja inn bindiefni til vegagerðar í skipsförmum.
Í tölvupósti segir Sigþór frá því að í síðustu viku hafi fyrirtækið fengið stóran farm sem dælt var úr skipi upp í birgðatanka Hlaðbæs í Hafnarfirði. Fyrirtækinu sé skylt að verjast áhættu af gengi íslensku krónunar og hafði krónan veikst stöðugt í janúar. „Samkvæmt ráðleggingum manna á gjaldeyrismarkaði sem töldu litlar líkur á að krónan færi að styrkjast var ákveðið að kaupa dollara á framvirku gengi á greiðsludögum næstu mánaða.“ Sigþór segir kaupin hafi verið gerð á miðvikudaginn í síðustu viku og að kaupverðið hafi verið um 200 milljónir króna.
Daginn eftir hóf Seðlabankinn inngrip sín á gjaldeyrismarkaði og segir Sigþór að tap félagsins af því að hafa ekki beðið með kaupin í einn dag sé rúmar 4,5 milljónir króna. „Það er gjörsamlega óþolandi að reka fyrirtæki við þessar aðstæður. Gjaldeyrishöft og kerfi þar sem embættismenn í Seðlabankanum leika sér með gjaldmiðil þjóðarinnar, ef gjaldmiðil skyldi kalla. Á sama tíma tala forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna um að íslenska krónan sé ekki vandamál. Hverra hagsmuna eru þeir að gæta?“