Viðskiptavinur Landsbankans, sem ræddi við Morgunblaðið í trausti nafnleyndar, segir bankann neita að endurreikna ólögmætt gengislán. Vegna þessa geti hann ekki losað sig við bíl sem hann keypti fyrir lánið. Þetta kemur fram á forsíðu Morgunblaðsins í dag.

Einar Hugi Bjarnason hæstaréttarlögmaður, sem gætti hagsmuna Plastiðjunnar í máli fyrirtækisins gegn Landsbankanum þegar það vann mál fyrir Hæstarétti í maí, telur að sá dómur geti haft fordæmisgildi í máli viðmælanda Morgunblaðsins. Í samtali við Morgunblaðið segir Einar Hugi Plastiðjumálið alveg skýrt og á grundvelli þess dóms ber Landsbankanum að leiðrétta fyrri endurútreikning bílalána: „Landsbankinn hefur lýst því yfir ítrekað að Plastiðjumálið hafi víðtækt fordæmisgildi og að bankinn muni leiðrétta endurútreikning tugþúsunda lána í byrjun júlí á grundvelli þess dóms. Nú er langt liðið á júlí og eftir því sem ég best veit bólar ekkert á endurreikningi bílalána. Mínir umbjóðendur bíða eftir því að Landsbankinn standi við ítrekaðar yfirlýsingar um að leiðrétta endurútreikning bílalána,“ segir Einar Hugi í samtali við Morgunblaðið.

Hann segir ennfremur að þessi töf sé til þess fallin að valda viðskiptavinum bankans miklu tjóni. „Það sætir auðvitað furðu að ríkisbankinn skuli draga lappirnar í þessum efnum og mikilvægt að eftirlitsaðilar fylgist vel með framvindunni og hlutist til um að bankinn standi við yfirlýsingar sínar,“ segir Einar og bendir á að fram hafi komið hjá Landsbankanum að málið varði um 30.000 einstaklinga og lögaðila.