Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir að Viðskiptablaðið hafi komist að rangri niðurstöðu við útreikning á meðallaunum ríkisstarfsmanna í frétt þann 19. nóvember sl.

„Þar sagði að þau væru 527 þ.kr. á mánuði (en hið rétta er 458 þ.kr. á mánuði m.v. fyrstu 10 mánuði ársins)," segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Jafnframt segir: „Í frétt Viðskiptablaðsins kemur réttilega fram að fjöldi ársverka hjá ríkinu séu í ár 18.600. Þar eru heildarlaunagreiðslur ríkisins sagðar vera 123,5 ma.kr. á yfirstandandi ári. Þar er líklega vitnað í launalið fjárlaga ársins 2009. Þá segir að séu launatengd gjöld dregin frá þessari upphæð nemi heildarlaunagreiðslurnar 117,7 ma.kr. Með því að deila þeirri tölu með fjölda ársverka kemst blaðið að þeirri niðurstöðu að meðallaun ríkisstarfsmanna eru 527 þ.kr. á mánuði. Það stenst ekki. Útreikningar Viðskiptablaðsins byggja á röngu mati á vægi launatengdra gjalda og ganga því ekki upp. Blaðið virðist gera ráð fyrir að launatengd gjöld séu tæp 5%. Hið rétta er að þau eru 21% og er launaliður fjárlaga að þeim frádregnum því 102,1 ma.kr. Með því að beita sömu aðferð og Viðskiptablaðið er niðurstaðan sú að meðallaun ríkisstarfsmanna eru 457 þ.kr. á mánuði sem er aðeins eitt þúsund krónum lægra en þau eru nú," segir í fréttatilkynningunni.

Athugasemd ritstjórnar:

Viðskiptablaðið hefur beðið fjármálaráðuneytið um sundurliðun á því sem flokkað er sem launatengd gjöld í svari ráðuneytisins. Stærsti hlutinn af því eru líklega greiðslur í lífeyrissjóði og séreignasjóði opinberra starfsmanna, sem Viðskiptablaðið taldi til launatekna.

Að reikna út launatekjur starfsmanna með þeim hætti er viðurkennd aðferð að mati sérfræðinga í vinnumarkaðsrannsóknum, sem Viðskiptablaðið hefur rætt við. Ef bera á saman heildarlaunagreiðslur til opinberra starfsmanna við greiðslur til starfsmanna á almennum vinnumarkaði verður að vera samræmi á milli hvernig lífeyrisgreiðslur eru teknar inn í. Þar gætti ónákvæmni í frétt Viðskiptablaðsins 19. nóvember sl.